Karellen

Systkinaafsláttur

Ef fleiri en eitt barn eru í dvöl á leikskóla, í tómstundaheimili eða hjá dagforeldrum eiga foreldrar rétt á systkinaafslætti fyrir eldra/elsta barnið. Foreldrar sem eiga tvö eða fleiri börn fá 50% afslátt af grunngjaldi fyrir barn umfram eitt og 75% af grunngjaldi fyrir hvert barn umfram tvö. Afsláttur er veittur af grunngjaldi, fullt verð er greitt fyrir fæði. Afslátturinn er settur á eldra/eldri börnin.

Sækja þarf um systkinaafslátt á Mínum Garðabæ. Athugið að endurnýja þarf umsókn um systkinaafslátt þegar elsta barn flyst frá dagforeldri á leikskóla eða frá leikskóla á tómstundaheimili grunnskóla.

© 2016 - 2024 Karellen