Karellen
news

Kirkjuból fagnar 40 ára afmæli – ný námskrá markar tímamót

04. 11. 2025

Kirkjuból fagnar 40 ára afmæli – ný námskrá markar tímamót

Leikskólinn Kirkjuból í Garðabæ fagnar í ár 40 ára afmæli sínu. Í fjóra áratugi hefur leikskólinn verið líflegur og hlýr vettvangur þar sem börn fá að læra, leika, skapa og vaxa í umhverfi sem einkennist af virðingu, væntumþykju og vináttu.

Í tilefni afmælisins hefur leikskólinn gefið út nýja skólanámskrá sem endurspeglar það fjölbreytta, skapandi og faglega starf sem á sér stað á Kirkjubóli alla daga. Námskráin dregur fram þau gildi, áherslur og aðferðir sem einkenna leikskólann og markar jafnframt nýjan áfanga í áframhaldandi fagþróun starfsins.


námskrá kirkjubóls 2025..pdf

© 2016 - 2026 Karellen